
„Ef fyrirtæki vilja laða til sín erlent toppfólk er mikill styrkur að vera nálægt miðbæ og háskólaumhverfi. Það er enda umhverfið sem slíkt fólk á að venjast ytra”
Sigurður Magnús Garðarsson er stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands. Á dögunum var hann í ítarlegu viðtali og sagði frá fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu.
Vísindin efla
Háskóli Íslands stofnaði Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. árið 2004. Félagið starfar í þágu almenningsheilla og eru tveir eigendur; Háskóli Íslands (94,6%) og Reykjavíkurborg (5,4%). Tilgangur félagsins, samkvæmt samþykktum, er að efla vísindarannsóknir og nýsköpun með því að skapa kjöraðstæður til slíks í vísindagörðum á lóð Háskóla Íslands.
Hvað eru Vísindagarðar?
Fólk á öllum aldri sem átti leið sína í Háskóla Íslands var tekið tali og spurt hvað það vissi um Vísindagarða?
Samstarf
Vísindagarðar Háskóla Íslands er samfélag aðila sem hafa það sameiginlega markmið að skapa kjöraðstæður fyrir rannsóknir og nýsköpun á Íslandi. Meðal verkefna er að byggja upp öfluga innviði, tengslanet og miðla af reynslu og þekkingu. Vísindagarðar er í þágu alls landsins en miðja þessa samfélags er á lóð Háskóla Íslands þar sem sumir samstarfsaðilanna hafa þegar komið sér fyrir. Meðal samstarfsaðila eru Háskóli Íslands, Íslensk erfðagreining ehf., Alvotech hf., Alvogen ehf., CCP hf., Lífvísindasetur Háskóla Íslands og ArcticLAS ehf.
“
Ég sé fyrir mér samfélag þar sem ríkir mikil gleði, jákvæðni og uppbygging.
”
Eiríkur Hilmarsson 2018
Stjórnin
Í stjórn Vísindagarða Háskóla Íslands sitja fjórir fulltrúar Háskólans og einn frá Reykjavíkurborg:
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, formaður
Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri hjá Marel
Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri ehf. og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja
Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði
Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg
Til vara eru þau Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor og fráfarandi forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið og Stefán Þór Helgason, sérfræðingur í sprota- og frumkvöðlamálum hjá KPMG.
Skipunartíminn er 2021-2022.
Linda Jónsdóttir, Kristinn Aspelund, Sigurður Magnús Garðarsson, Óli Jón Hertervig og Margrét Ögmundsdóttir
Fólkið í brúnni
Hrólfur Jónsson sinnir starfi framkvæmdastjóra Vísindagarða Háskóla Íslands. Hann var áður skrifstofustjóri eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg og sat fyrir hönd borgarinnar í stjórn Vísindagarða. Elísabet Sveinsdóttir, sér um markaðs- og kynnarmál ásamt fleiru.