Starf framkvæmdastjóra Vísindagarða Háskóla Íslands

Vísindagarðar Háskóla Íslands eru alþjóðlegt tækni- og þekkingarsamfélag á Íslandi sem tekur virkan
þátt í tengja saman frumkvöðla, fyrirtæki, háskóla, stofnanir og aðra hagsmunaaðila sem vinna að því
að efla hagnýtingu rannsókna, nýsköpun og viðskiptaþróun til hagsældar og heilla fyrir land og þjóð.
Við leitum nú að öflugum einstaklingi til að leiða starfsemina; móta og framkvæma stefnu félagsins til
framtíðar. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir aðila sem er víðsýnn og reynslumikill, hefur
brennandi áhuga á nýsköpun og þróun, góða reynslu af opinberri stjórnsýslu, þekkir innviði Háskóla
Íslands, rannsóknarumhverfi og nýsköpun á Íslandi. Viðkomandi þarf að geta unnið með teymum og
verkefnahópum og samræmt vinnu þeirra, vera lausnamiðaður og hafa víðtæk tengsl við atvinnulíf og
stjórnsýslu. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir stjórn félagsins og hefur starfsstöð í Aðalbyggingu
Háskóla Íslands.

Meðal verkefna:

  • Stjórn verkefna og daglegur rekstur, þ.á m. fjármál félagsins, greiningarvinna og áætlanagerð,markaðssetning og starfsmannastjórn

  • Tengslamyndun bæði við opinbera aðila og fyrirtæki – stýrir vinnu vegna viðskiptatækifæra

  • Samningagerð - leiðir vinnu vegna fjárfestinga og umbreytinga á núverandi eignum,lánamála og fjármögnunar

  • Samskipti við Háskóla Íslands, fjárfesta og hagsmunaaðila

  • Tengiliður við fræðasvið og yfirstjórn Háskólans og Reykjavíkurborg og umsjón með öllumöðrum erindum sem berast félaginu innan lands og erlendis frá

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Yfirgripsmikil reynsla af stjórnun, sérstaklega breytingastjórnun og umbótaverkefnum

  • Þekking og reynsla af skipulagsmálum og stjórnsýslu

  • Þekking og reynsla af rekstri fasteigna, útboðum, samningagerð og framkvæmdum

  • Þekking á sviði fjármála og reksturs fyrirtækja

  • Afburðagóð skipulags- og samskiptafærni

  • Reynsla eða góð þekking á akademísku umhverfi og akademískum störfum nauðsynleg

  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði

Nánari upplýsingar veitir Hilmar B. Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða, hilmar@hi.is, s: 8918770.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2019.
Sækja þarf um starfð
rafrænt hér og fylgja skal ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.