Aðalfundur Covidársins

Aðalfundur Vísindagarða fór fram 5. maí í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Gestir fundarins fengu m.a. innsýn í starf ársins 2020 sem einkenndist eðlilega af Covid, en þrátt fyrir það tókst að koma heilmiklu í verk. Formaður stjórnar, Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs las skýrslu stjórnar auk þess sem ný stjórn var kjörin fyrir tímabilið 2021-2022:

  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, formaður

  • Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði

  • Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg

  • Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri hjá Marel

  • Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri ehf. og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja

    Til vara eru þau Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor og fráfarandi forseti Deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið og Stefán Þór Helgason, sérfræðingur í sprota- og frumkvöðlamálum hjá KPMG.